Pólland sendi Þýskaland niður í annan styrkleikaflokk

Anton Ingi Leifsson skrifar
Milik jafnar af vítapunktinum.
Milik jafnar af vítapunktinum. vísir/getty
Portúgal og Pólland gerðu 1-1 jafntefli í leik liðanna í þriðja riðli Þjóðadeildarinnar í kvöld en fyrir leikinn var Pólland fallið og Portúgal búið að vinna riðilinn.

Portúgal komst yfir á 34. mínútu en þá skoraði Andre Silva og þannig stóðu leikar í hálfeik.

Portúgalar urðu fyrir áfalli á 63. mínútu er Danilo Pereira fékk beint rautt spjald og þremur mínútum síðar jafnaði Arkadiusz Milik af vítapunktinum.

Lokatölur 1-1 en það gerði það að verkum að Pólverjar senda Þjóðverja niður í annan styrkleikaflokk áður en dregið verður í riðla fyrir undankeppni EM 2020.

Pólverjar halda sér í fyrsta styrkleikaflokki en Þýskaland og Ísland eru einu liðin í A-deild Þjóðadeildarinnar sem verða í öðrum styrkleikaflokknum er dregið verður 2. desember.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira