Innlent

Barn flutt á slysadeild eftir að eldur kom upp í djúpsteikingarpotti

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Slökkviliðinu barst tilkynning um eld í potti.
Slökkviliðinu barst tilkynning um eld í potti. Vísir/vilhelm
Tilkynnt var um eld í íbúðarblokk í Álfheimum í Reykjavík á áttunda tímanum í kvöld. Kviknað hafði í potti með djúpsteikingarolíu og varð af því smá eldur.

Barn var flutt á slyadeild með minniháttar brunasár. Eldurinn reyndist ekki mikill og var að megninu til slökknaður þegar slökkvilið bar að garði en reykræsta þurfti íbúðina. 

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×