Innlent

Sluppu án alvarlegra meiðsla frá árekstri á Suðurlandsvegi

Birgir Olgeirsson skrifar
Sjúkrabíll var sendur á vettvang.
Sjúkrabíll var sendur á vettvang. Vísir/Vilhelm
Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi við afleggjarann að Reynisfjöru um klukkan tvö í dag. Þegar lögreglu barst tilkynning um málið var talið að um alvarlegt umferðarslys hefði verið að ræða. Betur fór þó en áhorfðist. Þegar fyrstu viðbragðsaðilar mættu á vettvang kom í ljós að slysið var minniháttar og enginn hafði slasast alvarlega en um var að ræða árekstur tveggja bíla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×