Fótbolti

Ari Freyr lék allan leikinn í tapi Lokeren

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Ari Freyr lék allan leikinn í kvöld
Ari Freyr lék allan leikinn í kvöld Vísir/Getty
Landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn í tapi Lokeren gegn Zulte-Waregam í belgísku úrvalsdeildinni í kvöld.



Fyrir leikinn voru bæði lið að berjast í neðri hluta deildarinnar og var þetta því mikilvægur leikur fyrir bæði lið.



Allt virtist stefna í markalausan leik en sigurmark Zulte-Waregam kom á 87. mínútu leiksins.



Zulte-Waregam bætti svo við öðru marki í uppbótartíma leiksins og lokatölur 2-0.



Svekkjandi tap Lokeren staðreynd.



Lokeren er í fimmtánda og næst síðasta sæti deildarinnar, aðeins stigi frá fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×