Handbolti

Þrjú mörk frá Arnóri í sigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Arnór hefur verið frábær í vetur
Arnór hefur verið frábær í vetur mynd/dhb
Bergischer vann tveggja marka sigur á Gummersbach í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag. Nýliðarnir fara með sigrinum í fimmta sæti deildarinnar.

Arnór Þór Gunnarsson hafði nokkuð hægt um sig miðað við oft áður og skoraði aðeins þrjú mörk í liði Bergischer. Fabian Gutbrod var markahæstur í liði Bergischer með sex mörk.

Heimamenn byrjuðu leikinn betur og komust í fjögurra marka forystu snemma leiks. Gestirnir voru þó fljótir að vinna forskotið upp og komust yfir. Í hálfleik var staðan 14-16 fyrir Gummersbach.

Seinni hálfleikurinn var í járnum og mjög jafnt með liðunum. Staðan var 28-28 þar til ein og hálf mínúta var eftir á leiknum. Þá skoraði Linus Arnesson fyrir Bergischer og kom heimamönnum yfir, Tomas Babak tryggði svo sigurinn með marki á síðustu sekúndunum, lokatölur 30-28.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×