Innlent

Frítt að borða í Bláskógabyggð

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Brynjólfur Sigurðsson, matráður í Aratungu í Bláskógabyggð sem eldar ofan í leik og grunnskólabörnin á staðnum.
Brynjólfur Sigurðsson, matráður í Aratungu í Bláskógabyggð sem eldar ofan í leik og grunnskólabörnin á staðnum. Jóna Kolbrún Kjartansdóttir
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur samþykkt samhljóða að skólamáltíðir leik- og grunnskólabarna í sveitarfélaginu verði gjaldfrjálsar frá 1. janúar 2019. Í bókun vegna málsins var tekið fram að það sé gert til að stuðla að réttindum barna í sambandi við heilsu og næringu og vísað til leiðbeininga á heimasíðu landlæknis um næringu skólabarna.

Í Bláskógabyggð eru reknir tveir grunnskólar, annars vegar Bláskógaskóli í Reykholti og hins vegar Bláskógaskóli á Laugarvatni, og er leikskóli samrekinn með grunnskólanum á Laugarvatni. Í Reykholti er síðan leikskólinn Álfaborg. Elstu nemendur skólans á Laugarvatni sækja nám í valgreinum í Reykholt.

Sveitarfélagið rekur mötuneyti í Reykholti sem þjónar leik- og grunnskóla þar, en samningur er við Menntaskólann á Laugarvatni um kaup á mat fyrir leik- og grunnskólabörn á Laugarvatni. Áhersla er á að bjóða upp á hollan og góðan mat og að hráefni úr héraði verði nýtt í auknum mæli, en mikil matvælaframleiðsla er í Bláskógabyggð.

Brynjólfur hefur nóg að gera alla virka daga vikunnar við að hræra í pottunum í Aratungu.Jóna Kolbrún Kjartansdóttir
86 nemendur eru í Bláskógaskóli í Reykholti og 27 eru í leikskólanum Álfaborg sem er líka í Reykholti. 73 nemendur eru í leik- og grunnskóla á Laugarvatni.

Íbúar í Bláskógabyggð voru 1.115 hinn 1. janúar 2018.

Kostnaður sveitarfélagsins við að bjóða ókeypis máltíðir fyrir leik- og grunnskólabörn nemur um 15 milljónum króna á ársgrundvelli.

„Þessi breyting tryggir öllum börnum aðgengi að hollum og góðum mat á skólatíma, auk þess sem létt er undir með barnafjölskyldum. Það er ánægjulegt að geta gert þessa breytingu og ekki annað að sjá en ánægja sé með þetta á meðal íbúa“, segir Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×