Lífið

Heather Locklear lögð inn á geðdeild

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Heather Locklear.
Heather Locklear. Getty/Amanda Edwards
Bandaríska leikkonan Heather Locklear var í dag lögð inn á geðdeild eftir að meðferðarsérfræðingur hennar komst að þeirri niðurstöðu að hún væri að fá geðrænt áfall.

Slúðurmiðillinn TMZ greinir frá því að Locklear hafi verið stödd á heimili sínu á sunnudag þegar meðferðarsérfræðingur og lögfræðingur hennar hafi áttað sig á því að hún þyrfti á hjálp að halda. Hringt hafi verið í neyðarlínuna og bráðaliðar hafi fært Locklear á spítala.

Þá greinir TMZ frá því að sögusagnir séu á kreiki um að Locklear hafi ráðist á kærasta sinn, en bætir við að þeir orðrómar séu óstaðfestir og að heimildir miðilsins hermi að kærastinn hafi ekki verið á svæðinu.

Leikkonan, sem er hvað þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Melrose Place, var fyrr á þessu ári lögð inn á geðdeild og fór í kjölfarið í meðferð við áfengisfíkn.   

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×