Innlent

Erfitt fyrir slökkviliðsmenn að halda aftur af sér

Jóhann K. Jóhannsson og Kjartan Kjartansson skrifa
Slökkviliðsmenn á viðrunarfundi eftir úkallið vegna brunans á Selfossi.
Slökkviliðsmenn á viðrunarfundi eftir úkallið vegna brunans á Selfossi. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Snemma var ljóst að ekki yrði hægt að bjarga fólki úr húsinu sem brann á Selfossi í gær. Slökkviliðsstjórinn á svæðinu segir að við þær aðstæður geti slökkviliðsmenn átt erfitt með að halda aftur af sér þegar þeim er skipað að fara ekki inn. Slökkviliðsmennirnir funduðu í dag til að ræða um störfin á vettvangi í gær sem reyndu mikið á þá.

Karl og kona sem voru gestkomandi fórust í brunanum á Kirkjuvegi 18 á Selfossi í gær. Greint var frá nöfnum þeirra í dag. Konan hét Kristrún Sæbjörnsdóttir, fædd árið 1971 og búsett í Reykjavík. Hún lætur eftir sig þrjá syni. Karlmaðurinn hét Guðmundur Bárðarson, fæddur 1969 og búsettur á Selfossi. Hann var ókvæntur og barnlaus.

Húsráðandi og kona sem var þar gestkomandi voru úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna í kvöld. Lögregla segist hafa rökstuddan grun um að eldurinn hafi kviknað af völdum manna.

Þegar slökkviliðið kom að húsinu í gær hafði það vitneskju um að ein eða tvær manneskjur væru innandyra. Þá var húsið hins vegar þegar nær alelda. Mikill hiti og þrýstingur var á efri hæð hússins og segir Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, að snemma hafi því verið ljóst að ekki yrði hægt að bjarga lífum fólksins. Það hafi valdið miklu álagi á slökkviliðsmennina.

„Það er þannig að menn þurfa að taka á öllu sínu til þess að halda stillingu og geta farið eftir fyrirmælum þegar þannig er,“ sagði Pétur í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Með hvöt til þess að bjarga

Nú síðdegis áttu slökkviliðsmennirnir svokallaðan viðrunarfund. Í samtali við Vísi segir Pétur slökkviliðsstjóri að slíkir fundir séu haldnir eftir erfið útköll. Á þeim viðri menn það sem var gert á vettvangi, hver gerði hvað, hvernig og af hverju.

Markmið er að tryggja að allir hafi sama skilning á verkinu því ekki sé víst að allir hafi vitað af hverju tilteknar ákvarðanir á vettvangi hafi verið teknar og hvað leiddi til þess.

„Menn í þessum störfum fara allir í þau vegna þess að þeir hafa einhverja hvöt í sér til þess að hjálpa og bjarga. Þess vegna getur verið afskaplega erfitt fyrir menn að halda aftur af sér þegar þeir fá þau fyrirmæli að fara ekki inn þrátt fyrir að þeir viti sjálfir að aðstæður séu algerlega ólífvænlegar. Þá getur hvötin verið svo mikil að menn vilja gera það sem þeir geta,“ segir Pétur.

Á fundinum gátu menn rætt störfin, borið upp spurningar og vangaveltur sínar.

„Ég held að það hafi allir gengið mjög sáttir í sínu hjarta frá þessum fundi með að það var gert það sem hægt var að gera,“ segir Pétur.

Eftir að ljóst var að ekki væri hægt að bjarga lífum segir Pétur að slökkviliðið hafi einbeitt sér að því að tryggja rannsóknarhagsmuni. Það verk hafi gengið eins vel og best verður á kosið.

Pétur slökkviliðsstjóri svaraði spurningum slökkviliðsmanna um slökkvistörfin í gær á viðrunarfundinum í dag.Vísir/Jóhann K. Jóhannsson

Viðbragðsaðilar manneskjur með tilfinningar

Viðrunarfundir eins og sá sem var haldinn í dag eru hluti af því að fylgjast með slökkviliðsmönnum eftir erfið útköll. Pétur segir að ef fundirnir dugi ekki til að létta á fólki sé því beint á brautir þar sem það fær sérhæfða aðstoð.

„Við reynum að vera vakandi og fylgjast með okkar fólki,“ segir hann.

Andlegu áhrifin koma hins vegar stundum ekki í ljós fyrr en einhverjum dögum á eftir að sögn Péturs þar sem fyrst á eftir sé heilinn enn að vinna úr atburðum.

„Allir þessi menn, sama hvort það eru lögreglumenn, slökkviliðsmenn eða sjúkraflutningamenn, þó að þetta virðist allt mjög hart fólk er þetta bara manneskjur með allar sínar tilfinningar,“ segir slökkviliðsstjórinn.


Tengdar fréttir

Hin látnu voru gestkomandi í húsinu

Viðbragðsaðilar á vettvangi við Kirkjuveg á Selfossi fundu í morgun karl og konu sem fórust í eldsvoða í húsinu í gær.

Eldsupptök talin vera af mannavöldum

Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir karli og konu sem handtekin voru í tengslum við eldsvoða við Kirkjuveg á Selfossi í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×