Þolinmæðisverk hjá Real Madrid á heimavelli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bale í leiknum í kvöld.
Bale í leiknum í kvöld. vísir/getty
Það tók Real Madrid 83 mínutur að brjóta niður varnarmúr Real Valladolid en hafði að lokum betur, 2-0, í leik liðanna í spænsku úrvalsdeildinni.

Leikurinn var fyrsti leikur Santiago Solari sem þjálfari í spænsku úrvalsdeildinni en hans stýrði Real til sigurs í bikarkeppninni í vikunni.

Staðan var markalaus allt þangað til á 83. mínútu er Kiko Olivas varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Fimm mínútum síðar skoraði Sergio Ramos af vítapunktinum. Lokatölur 2-0.

Real er nú í sjötta sæti deildarinnar með sautján stig, fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona. Barcelona á þó leik til góða en liðið spilar við rayo Vallecano í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira