Juventus er óstöðvandi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dybala fagnar marki í kvöld.
Dybala fagnar marki í kvöld. vísir/getty
Juventus er áfram með sex stiga forskot á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Cagliari á heimavelli í kvöld.

Það var ekki liðin ein mínúta er Juventus komst yfir á Allianz-leikvanginum í Tórínó en Argentínumaðurinn Paulo Dybala kom þeim í 1-0.

Nokkuð óvænt jöfnuðu gestirnir metin í fyrri hálfleik er Joao Pedro skoraði á 36. mínútu. Það tók Juve hins vegar tvær mínútur að komast aftur yfir en Filip Bradaric skoraði þá sjálfsmark.

Í síðari hálfleik bættu svo meistararnir við einu marki en þá skoraði Juan Cuadrado þremur mínútum fyrir leikslok eftir stoðsendingu frá Cristiano Ronaldo.

Lokatölur 3-1 en Juventus er á toppi deildarinnar með 31 stig. Inter og Napoli eru í öðru og þriðja sætinu með 25. Cagliari er í þretánda sæti deildarinnar.

Roma gerði 1-1 jafntefli við Fiorentina en Roma er eftir jafnteflið með sextán stig í sjöunda sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira