Jafnt í stórleiknum á Emirates

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lacazette skoraði mark Arsenal í kvöld.
Lacazette skoraði mark Arsenal í kvöld. vísir/getty
Arsenal og Liverpool gerðu jafntefli, 1-1, er liðin mættust á Emirates-leikvanginum í kvöld. Bæði mörkin komu í síðari hálfleik.

Staðan var markalaus í hálfleik en bæði lið höfðu verið á miklu skriði áður en kom að leiknum í Lundúnum í kvöld.

Það voru gestirnir frá Liverpool sem komust yfir. Eftir mistök Bernd Leno í marki Arsenal barst boltinn til James Milner sem hamraði boltann í netið.

Unai Emery, stjóri Arsenal, byrjaði aðeins að hreyfa við liðinu. Það var varamaðurinn Alex Iwobi sem lagði boltann inn fyrir á Alexandre Lacazette sem jafnaði metin á 82. mínútu.

Fleiri urðu mörkin ekki og 1-1 jafntefli niðurstaðan. Liverpool er á toppi deildarinnar með 27 stig en City og Chelsea eiga leiki til góða.

City er með 26 stig, Chelsea 24 og svo kemur Arsenal í fjórða sætinu með 23 stig. Tottenham getur náð 24 stigum vinni þeir Wolves síðar í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira