Körfubolti

Einar Árni: Okkur þykir afskaplega vænt um Elvar

Magnús Einþór Áskelsson skrifar
Einar er þjálfari Njarðvíkur. Þar er hann að gera góða hluti.
Einar er þjálfari Njarðvíkur. Þar er hann að gera góða hluti. vísir/vilhelm
Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur var gríðarlega ángæður með öruggan sigur sinna manna á Íslandsmeisturum KR í kvöld.

Ólíkt öðrum leikjum í vetur mættu þeir tilbúnir til leiks og gáfu strax tóninn og lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik, en Njarðvíkingar leiddu með 25 stigum í hálfleik og sigurinn aldrei í hættu.

„Mér fannst þetta gott framhald frá bikarleiknum á móti Val. Það var þéttleiki sem við vorum að gera og það á ekki að vera erfitt að mótivera menn fyrir að spila gegn KR sem eru meistarar síðustu fimm ára.“

„Það er mikil saga og rýgur á milli þessara félaga þannig að ég var gríðarlega ánægður með hvernig strákarnir komu út í leikinn og heilt yfir mjög ánægður, sérstaklega með varnarleikinn.“

„Við erum búnir að sjá Jón Arnór frábæran í síðustu leikjum og halda honum í tíu punktum í dag sem hann þurfti virkilega að hafa fyrir og ég er  virkilega ánægður með drengina í þeim efnum.“

„KR-ingar þurftu að hafa virkilega fyrir hlutunum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við erum virkilega ánægðir með frammistöðuna heilt yfir.“

„Ég ætla ekki að fara tína til einhverja neikvæða punkta það er fyrst og fremst bara góður liðsbragur á okkur, frábært effort og liðs varnarleikur sem stendur upp úr og tökum við það með okkur í framhaldið,“ sagði Einar.

Í kvöld var staðfest að Elvar Már væri á leið í Njarðvík en Einar vildi lítið gefa upp í leikslok.

„Við þurfum að sjá til hvort hann kæmist í liðið ef til þess kæmi en nei það eru engar fréttir.Ég veit ekki betur en hann var að spila í Frakklandi í kvöld og hann sé faktískt búinn að missa vinnuna.“

„Okkur þykir afskaplega vænt um Elva og tækjum honum opnum örmum ef til kæmi en ég heyri pottþétt í Elvari um helgina og athuga með stöðuna á honum en hvort hann sé að koma til Íslands verður bara að koma í ljós,“ sagði hann.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×