Innlent

Stór leki í kaldavatnslögn

Birgir Olgeirsson skrifar
Tilkynningar hafa borist um vatnsleysi í vesturhluta borgarinnar.
Tilkynningar hafa borist um vatnsleysi í vesturhluta borgarinnar. Fréttablaðið/Eyþór
Við framkvæmdir verktaka gerðist það óhapp að grafið var í stofnlögn kalds vatns við Tanngarð, hús tannlæknadeildar Háskóla Íslands, um klukkan 13:00 í dag. Um er að ræða stóra lögn sem fæðir Vesturbæ Reykjavíkur. Mikið vatn flæddi úr lögninni og hefur það valdið þrýstingslækkun í dreifikerfi kalda vatnsins í vestari hluta borgarinnar. Tilkynningar hafa borist um vatnsleysi á þessu svæði.

Búið er að stöðva lekann og unnið er að því að ná þrýstingi í eðlilegt horf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×