Innlent

Grunaður um að hafa ekki komið konunni til hjálpar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni í dag beinist rannsóknin að því að upplýsa um hvenær og hvernig andlát konunnar bar að.
Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni í dag beinist rannsóknin að því að upplýsa um hvenær og hvernig andlát konunnar bar að. Vísir/Vilhelm
Maðurinn sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald í tengslum við andlát ungrar konu á Akureyri um helgina er grunaður um að hafa ekki komið konunni til hjálpar.

Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manninum sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Fréttastofa hefur úrskurðinn undir höndum.

Konan fannst látin á heimili sínu á sunnudaginn og rannsakar lögregla andlátið. Var það faðir konunnar sem kom að henni látinni en ung börn hennar voru á heimilinu. Í úrskurðinum segir að rannsókn málsins sé mjög skammt á veg komin en sérfræðingar frá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru sendir til Akureyrar í gær og aðstoðuðu þeir við vettvangsrannsókn sem lauk í gær.

Eftir eigi að rannsaka símasamskipti konunnar sem hugsanlega geti varpað ljósi á það hvenær hún hafi látist og einnig hvort fleiri hafi verið í íbúðinni. Þá liggur dánarorsök ekki fyrir.

Lögregla verst allra frétta

Maðurinn er talinn hafa verið á vettvangi er konan lést og í úrskurðinum segir að rökstuddur grunur sé um að maðurinn hafi brotið gegn fyrstu og/eða fjórðu málsgrein 220. greinar hegningarlaga.

Kveða þær á um að hver sem komi manni í það ástand, að hann sé án bjargar, eða yfirgefur mann, sem hann átti að sjá um, í slíku ástandi, skuli sæta fangelsi allt að 8 árum og að sá sem í ábataskyni, af gáska eða á annan ófyrirleitinn hátt stofni lífi og heilsu annarra í augljósan háska skuli sæta fangelsi allt að fjórum árum.

Maðurinn er einnig grunaður um að hafa brotið gegn 221. grein hegningarlaga en þar segir að láti maður farast fyrir að koma manni til hjálpar, sem staddur sé í lífsháska, þótt hann gæti gert það án þess að stofna lífi eða heilbrigði sjálfs sín eða annarra í háska varði það fangelsi allt að tveimur árum.

Í úrskurðinum segir einnig að ekki hafi verið hægt að taka skýrslu af manninum vegna annarlegs ástands. Telur lögreglan á Akureyri líklegt að maðurinn hafi tækifæri til að torvelda rannsókn málsins gangi hann laus næstu daga.

Fréttastofa hefur ítrekað reynt að ná tali af Bergi Jónssyni, sem er yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar, án árangurs og hefur lögregla lítið sem ekkert viljað gefa uppi um gang rannsóknarinnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×