Enski boltinn

Mourinho: Reyndum allt til enda

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mourinho í kröppum dansi í kvöld.
Mourinho í kröppum dansi í kvöld. vísir/getty
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, segir að sínir menn hafi reynt allt gegn Juventus í kvöld en að það hafi ekki borið árangur.

„Í hinu liðinu voru rosalega gæði. Stundum lítur fólk á Ronaldo og Dybala en í topp liði verðuru að skoða leikmenn eins og Chiellini og Bonucci,“ sagði Mourinho á blaðamannafundi kvöldsins.

„Það er mjög erfitt að spila gegn Juventus þegar þeir eru yfir. Hlutirnir voru ekki að detta fyrir okkar sóknarþenkjandi leikmenn en allir reyndu og voru sterkir andlega allt til enda."

„Juventus fann það og þeir bættu við auka miðverði við hliðina á mögnuðum Chiellini og Bonucci. Þetta var mjög erfiður leikur fyrir okkur. Ég hélt við gætum fengið eitthvað út úr þessum leik en svo var ekki.“

Romelu Lukaku hefur ekki skorað á Old Trafford síðan í lok mars og hefur verið ískaldur undanfarið. Han nátti mjög slakað leik í kvöld og Mourinho tók undir það.

„Hann er ekki á sínu besta tímabili og það eru ekki bara mörkin heldur er hann ekki að tengjast liðinu nægilega vel en hann er okkar framherji og við trúum á hann,“ sagði Mourino.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×