Fótbolti

Aftur mætti United of seint í heimaleik og gæti fengið sekt

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Það virðist erfitt fyrir rútu United að koma á réttum tíma
Það virðist erfitt fyrir rútu United að koma á réttum tíma vísir/getty
Manchester Untied gæti átt yfir höfði sér sekt frá UEFA fyrir að mæta of seint á Old Trafford fyrir leik liðsins gegn Juventus í Meistaradeild Evrópu í gær.

UEFA gerir liðum skylt að mæta á völlinn 75 mínútum áður en leikur á að hefjast. Liðsrúta United mætti um tíu mínútur eftir sjö að breskum tíma þegar leikurinn átti að hefjast klukkan 20:00.

Þetta er í annað skiptið á stuttum tíma sem lið United mætir of seint á heimaleik, liðið var sektað af UEFA um 15 þúsund evrur í síðustu viku fyrir að koma of seint í leik liðsins við Valencia í byrjun októbermánaðar.

Þá gæti félagið einnig þurft að borga sekt fyrir það að tvisvar hlupu áhorfenddur inn á völlinn. Stuðningsmaður hljóp inn á völlinn í fyrri hálfleik og eftir að leik lauk gerðu tveir aðrir stuðningsmenn sér leið inn á völlinn.

Lögreglan í Manchester hefur staðfest að einn maður gisti í fangageymslu í nótt vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×