Fótbolti

Shaw: Við bárum of mikla virðingu fyrir þeim

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Shaw og Chris Smalling í leiknum í gær
Shaw og Chris Smalling í leiknum í gær Vísir/Getty
Luke Shaw segir Manchester United hafa borið of mikla virðingu fyrir Juventus. United tapaði 0-1 fyrir þeim ítölsku í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld.

Eina mark leiksins kom á 17. mínútu þegar Paulo Dybala skoraði eftir hraða sókn Juventus. Gestirnir frá Ítalíu voru með yfirhöndina í leiknum allan tíman og gekk United illa að skapa færi.

„Í fyrri hálfleik bárum við of mikla virðingu fyrir þeim,“ er haft eftir Shaw í Independent. „Við reyndum í seinni hálfleik og gerðum meira, eins og oft áður.“

„Við sköpuðum ekki nógu mikið af hreinum færum. Þeir voru allt of mikið með boltann í fyrri hálfleik og við áttum von á því.“

„Við hefðum átt að pressa þá hærra og vera agressívari.“

United er enn í öðru sæti H riðils þar sem Valencia gerði jafntefli við Young Boys. Tveimur stigum munar á United og Valencia. Juventus er í efsta sæti riðilsins með níu stig, fimm stigum á undan United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×