Enski boltinn

Einungis Gerrard skorað meira en Gylfi á Old Trafford

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gylfi gefur Michael Keane fimmu.
Gylfi gefur Michael Keane fimmu. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eina mark Everton sem tapaði 2-1 fyrir Manchester United á Old Trafford í dag.

Gylfi hefur oftar en ekki gert það gott á Old Trafford. Hann minnkaði muninn í 2-1 úr vítaspyrnu eftir að United hafði komist í 2-0.

Þetta var fjórða mark Gylfa á Old Trafford en flestir leikmenn dreyma um að skora einu sinni á Leikvangi draumanna. Gylfi hefur hins vegar gert það fjórum sinnum.

Einungis Steven Gerrard hefur gert betur en Gylfi sem leikmaður úti liðsins á Old Trafford. Gerrard er með fimm mörk en Sergio Aguero, Darren Bent og Edin Dzeko eru einnig með fjögur mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×