Fótbolti

Líf Messi verður að sirkussýningu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Cirque du Soleil sirkusinn ætlar að setja á laggirnar sýningu byggða á lífi Argentínumannsins Lionel Messi.

Sirkusinn er einn sá frægasti í heimi og ætlar að leggja upp í ferðalag um heiminn á næsta ári með sýninguna. Sirkusinn hefur áður byggt sýningar á tónlistamönnum á borð við Michael Jackson og Bítlunum.

„Cirque du Soleil er í uppáhaldi hjá fölskyldunni. Það er brjálað og ótrúlegt að sirkusinn ætli að búa til sýningu byggða á mínu lífi, minni ástríðu og íþróttinni minni,“ sagði Messi.

Talsmaður sirkusins sagði sýninguna ætla að „stökkva inn í hinn ástríðufulla heim fótboltans og fá innblástur frá ótrúlega hæfileikaríku goðsögninni Messi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×