Innlent

Skóflustunga tekin að nýju þjóðarsjúkrahúsi við Hringbraut

Frá skóflustungunni í dag.
Frá skóflustungunni í dag. Vísir/Eva Björk
Skóflustunga var tekin í dag að nýju þjóðarsjúkrahúsi við Hringbraut. Ráðherrar ásamt fulltrúum félaga, hagsmunasamtaka og stofnanna tóku fyrstu skóflustungu nýs meðferðarkjarna. Fyrrverandi heilbrigðisráðherrar voru viðstaddir skóflustunguna auk fjölmargra annarra gesta. Áætlað er að meðferðarkjarninn verði tekin í notkun árið 2024.



Frá skóflustungunni í dag.Vísir/Eva Björk
Í tilkynningu segir að meðferðarkjarninn sé stærsta byggingin í Hringbrautarverkefninu svokallaða og gegni lykilhlutverki í starfseminni. Hann er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss. Kjarninn tengist öðrum starfseiningum Landsspítala með tengigöngum og tengibrúm en hann verður á sex hæðum auk tveggja hæða kjallara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×