Innlent

Auðun hættir hjá Félagsbústöðum

Andri Eysteinsson skrifar
Auðun Freyr Ingvarsson, framkvæmdastjóri Félagsbústaða.
Auðun Freyr Ingvarsson, framkvæmdastjóri Félagsbústaða. Mynd/Félagsbústaðir
Framkvæmdastjóri Félagsbústaða, Auðun Freyr Ingvarsson, hefur ákveðið að láta af störfum.

Auðun tilkynnti starfsmönnum Félagsbústaða um ákvörðunina í starfsmannaferð fyrirtækisins í dag.

Þetta kemur fram í frétt Ríkisútvarpsins. Auðun mun hafa gengið frá starfslokum sínum með Haraldi F. Tryggvasyni stjórnarformanni félagsins.

RÚV greinir frá því að von væri á sameiginlegri yfirlýsingu frá Auðuni og stjórn fyrirtækisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×