Handbolti

Stefán Rafn með þrjú mörk í sigri Pick Szeged

Smári Jökull Jónsson skrifar
Stefán Rafn skorað tvö í kvöld
Stefán Rafn skorað tvö í kvöld
Hornamaðurinn Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar hans í ungverska liðinu Pick Szeged lögðu þýska liðið Flensburg í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í dag en leikurinn fór fram á heimavelli Pick Szeged.

Fyrir leikinn var ungverska liðið með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir og jafnir stórliði PSG á toppnum. Flensburg var í 4.sæti með fjögur stig.

Ungverjarnir leiddu með einu marki í leikhléi í jöfnum og spennandi leik. Þeir unnu svo að lokum tveggja marka sigur, 30-28, og halda því í við PSG á toppi riðilsins.

Stefán Rafn átti fínan leik fyrir Pick Szeged og skoraði þrjú mörk úr þeim fjórum skotum sem hann tók. Markahæstur var Slóveninn Mario Sastaric með sex mörk.

Hjá Flensburg voru þeir Holger Glandorf og Magnus Abelvik Röd markahæstir með fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×