Körfubolti

Suðurnesjaslagur í fyrstu umferð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lewis Clinch og félagar taka á móti Keflavík.
Lewis Clinch og félagar taka á móti Keflavík. fréttablaðið/eyþór
Í dag var dregið í 32-liða úrslit í bikarkeppni KKÍ sem að þessu sinni kallast Geysisbikarinn.

Stórleikur umferðarinnar verður í Grindavík taka á móti Keflvíkingum. Annar Dominos-deildarslagur er á milli Njarðvíkur og Vals.

Íslandsmeistarar KR fara á Álftanesið og mæta þar lærisveinum Hrafns Kristjánssonar. Með liðinu leika kempur eins og Kjartan Atli Kjartansson, umsjónarmaður Körfuboltakvölds.

Drátturinn:

Snæfell - Þór Þ.

Grundarfjörður - ÍA

KV - Fjölnir

Höttur - Skallagrímur

Njarðvík - Valur

Vestri b - Hamar

Reynir Sandgerði - Tindastóll

Álftanes - KR

Haukar b - KR b

Grindavík - Keflavík

Selfoss - Sindri

Þór Ak. - Haukar

Stjarnan - Breiðablik

Vestri, Njarðvík b og ÍR sitja hjá og komast því beint í 16-liða úrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×