Sport

Mayweather: Náið í ávísanaheftið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ef það eru stórir peningar í boði þá hefur Mayweather alltaf áhuga.
Ef það eru stórir peningar í boði þá hefur Mayweather alltaf áhuga. vísir/getty
Khabib Nurmagomedov vill fylgja í fótspor Conor McGregor og boxa við Floyd Mayweather. Hnefaleikakappinn virðist vera spenntur fyrir því að mæta Rússanum.

Khabib hefur aldrei tapað í MMA og Mayweather aldrei tapað hnefaleikabardaga. Rússanum finnst því eðlilegt að þeir berjist.

Mayweather svaraði honum á Twitter í gær og bað menn um að sækja ávísanaheftið og setja sig í stellingar.





Khabib var fljótur að spennast upp eftir að hafa séð þessi skilaboð. Hann vill þó ekki berjast í Vegas þar sem hann fær ekki borgað þar. Rússinn hefur ekki enn fengið krónu fyrir bardagann gegn Conor þar sem allar hans greiðslur voru frystar á meðan málið gegn honum er tekið fyrir en hann missti sig eftir bardagann.





Svona við fyrstu sýn virðist ekki vera sama stemning fyrir þessum bardaga og bardaga Mayweather og Conor. Sérstaklega í ljósi þess að Khabib er langt frá því að vera jafn öflugur boxari og Conor og Írinn hafði ekkert að gera í Mayweather.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×