Ronaldo skoraði í óvæntu jafntefli Juventus

Dagur Lárusson skrifar
Ronaldo var á skotskónum í dag.
Ronaldo var á skotskónum í dag. Vísir/AP


Cristiano Ronaldo og félagar í Juventus gerðu óvænt 1-1 jafntefli gegn Genoa í ítölsku deildinni í dag en Ronaldo skoraði mark Juventus.

 

 

Ronaldo var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn en mark hans kom strax á 18. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleiknum.

 

 

Eflaust bjuggust stuðningsmenn Juventus við enn einum öruggum sigri en það átti þó ekki eftir að vera raunin.

 

 

Liðsmenn Genoa sýndu mikið hugrekki og náðu að skora á 67. mínútu og jafna leikinn.

 

 

Liðsmenn Juventus reyndu hvað þeir gátu að skora sigurmarkið en allt kom fyrir ekki og því skildu liðin jöfn.

 

 

Eftir leikinn er Juventus með  25 stig í efsta sæti deildarinnar á meðan Genoa er í 10.sæti með þrettán stig.

 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira