Enski boltinn

Mourinho telur starf sitt ekki í hættu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
vísir/getty
Jose Mourinho telur ekki að starf hans hjá Manchester United sé í hættu. Hann segist trúa því að allir leikmenn hans leggi sig fram í leikjum, en sumum sé meira sama en öðrum.

Mourinho sat fyrir svörum blaðamanna í dag fyrir leik Manchester United og Valencia í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.

Portúgalinn var spurður út í tölfræði sem segir leikmenn Untied ekki leggja eins hart að sér og leikmenn annara liða í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég trúi ekki að leikmenn séu óheiðarlegir. Spyrjið leikmenn sem eru í miklum metum hvort þeir hafi einhvertíman farið inn í leik og ekki gert sitt besta. Ef einhver segir við mig „ég var leikmaður og einu sinni reyndi ég ekki mitt besta,“ þá skal ég skipta um skoðun. Þangað til tel ég leikmennina vera heiðarlega,“ sagði Mourinho.

„Tölfræði er tölfræði. Tölfræði er eitt, leikmaðurinn sjálfur er annað.“

„Stundum sér maður ekki allt sem maður fær. Ég held að sumum leikmkönnum sé meira sama heldur en öðrum.“

Eftir 3-1 tap fyrir West Ham í úrvalsdeildinni um helgina fóru sögusagnir á flug um að forráðamenn United væru nú þegar farnir að hafa samband við mögulega arftaka Mourinho og hann verði látinn fara fyrr en síðar.

Spurður hvort hann teldi starf sitt vera í hættu var svar Mourinho einfalt: „Nei, það held ég ekki.“

Hann var álíka stuttorður þegar hann var spurður hvort hann hefði rætt við framkvæmdarstjórann Ed Woodward eftir tapið.

„Það er einkamál. Ég ætla ekki að svara þessu,“ sagði Jose Mourinho.

Eftir slæma byrjun í úrvalsdeildinni og óvænt tap í deildarbikarnum er Meistaradeildin eina keppnin þar sem United hefur staðið undir væntingum til þessa. Liðið sigraði Young Boys frá Sviss á útivelli í fyrstu umferð riðlakeppninnar. United mætir Valencia á Old Trafford annað kvöld og fær svo Juventus í heimsókn í lok mánaðarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×