Íslenski boltinn

Sjáðu tryllta stemningu Íslandsmeistara Vals inni í klefa eftir leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rosaleg stemning inni í klefa eftir leikinn.
Rosaleg stemning inni í klefa eftir leikinn.
Lokaþáttur Pepsi-markanna var í opinni dagskrá Stöð 2 Sport á laugardagskvöldið og var þá Íslandsmeistaratitill Vals gerð skil í þættinum.

Ástríðan var á svæðinu að Hlíðarenda og fékk Stefán Árni Pálsson aðgang að leikmönnum Vals inni í klefa eftir sigurinn á Keflavík.

Stemningin var ótrúleg og gleðin ríkjandi hjá leikmönnum, þjálfurum og stjórnarmönnum.

Saman sungu menn lög með Robbie Williams, Oasis og auðvitað stuðningsmannalag ÍBV, eins og Valsmenn gera eftir hvern sigurleik.

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.


Tengdar fréttir

„Ert þú eitthvað bilaður?“

Fylkir og FH gerðu 1-1 jafntefli í Pepsi-deild karla á sunnudagskvöldið og fór leikurinn fram í Lautinni í Árbænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×