Enski boltinn

Cech frá í allt að fjórar vikur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Cech fær aðhlynningu á vellinum á laugardaginn
Cech fær aðhlynningu á vellinum á laugardaginn vísir/getty
Petr Cech verður frá liði Arsenal næsta mánuðinn vegna meiðsla aftan í læri.

Cech meiddist í sigri Arsenal á Watford um helgina og hefur nú verið staðfest að hann verði frá í allt að fjórar vikur vegna meiðslanna.

Bernd Leno mun standa vaktina í marki Arsenal í stað Tékkans. Leno var fenginn til Arsenal frá Bayer Leverkusen í sumar.

Næsti leikur Arsenal er gegn liði Hannesar Þórs Halldórssonar Qarabag í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×