Enski boltinn

Klopp söng þýskt lag fyrir afmælisbörnin og leikmennirnir hlógu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Klopp í stuði í gær.
Klopp í stuði í gær. vísir/getty
Það var mikið fjör á æfingu Liverpool á Ítalíu í gær en þeir Roberto Firmino og Alisson voru báðir afmælisbörn gærdagsins.

Liverpool mætir Napoli í Meistaradeildinni í kvöld en leikið er á Ítalíu. Liverpool er með þrjú stig eftir sigur gegn PSG á Anfield í fyrstu umferðinni.

Napoli gerði markalaust jafntefli gegn Rauðu Stjörnunni á útivelli og leitar því að sínum fyrsta sigri í Meistaradeildinni undir stjórn Carlo Ancelotti.

Það voru tvö afmælisbörn í hópnum hjá Liverpool í gær en það voru Brasilíumennirnir Roberto Firmino og Alisson.

Á æfingu liðsins í gær var að sjálfsögðu sungið fyrir þá og þar stýrði stjórinn, Jurgen Klopp, stemningunni en sungið var að þýskum sið.

Myndbandið skemmtilega má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×