Viðskipti innlent

Engin breyting á stýrivöxtum

Samúel Karl Ólason skrifar
 Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að útlist sé fyrir meiri hagvöxt en gert var ráð fyrir og að spennan í þjóðarbúskapnum gæti verið meiri en spáð var.
Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að útlist sé fyrir meiri hagvöxt en gert var ráð fyrir og að spennan í þjóðarbúskapnum gæti verið meiri en spáð var. Vísir/Hanna
Peningastefnunefnd Seðlabanka íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Það þýðir að vextir á sjö daga bundnum innlánum verða áfram 4,25 prósent. Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að útlist sé fyrir meiri hagvöxt en gert var ráð fyrir og að spennan í þjóðarbúskapnum gæti verið meiri en spáð var.

Þó bendi hátíðnisvísbendingar og kannanir til þess að mögulega muni draga hraðar úr vexti eftirspurnar en áður var talið.

Enn fremur segir í yfirlýsingunni að verðbólga hafi aukist á þriðja fjórðungi ársins, eins og spáð var. Verðbólga án húsnæðis hafi einnig aukist og munurinn á milli mælikvarða á verðbólgu með og án húsnæðis hafi minnkað mikið.

„Áfram dregur úr árshækkun húsnæðisverðs en á móti vegur að innflutningsverð hefur hækkað umtalsvert að undanförnu. Að hluta endurspeglar það hraða hækkun olíuverðs á alþjóðamarkaði. Gengi krónunnar hefur lækkað frá síðasta fundi peningastefnunefndar og gengisflökt jókst í september m.a. vegna óvissu um fjármögnun eins af stóru flugfélögum landsins,“ segir í yfirlýsingunni.

Verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hefur hækkað en verðbólguvæntingar hafa haldist óbreyttar frá síðasta fundi peningastefnunefndar. Svo virðist sem verðbólguvæntingar séu nokkuð yfir markmiði og segist nefndin bæði hafa vilja og tæki til að halda verðbólgu við markmið til lengri tíma litið.

„Haldi verðbólguvæntingar áfram að hækka og festist í sessi umfram markmið mun það kalla á harðara taumhald peningastefnunnar. Aðrar ákvarðanir, einkum á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum, hafa þá áhrif á hversu mikill fórnarkostnaður verður í lægra atvinnustigi.“

Yfirlýsingin endar á því að peningastefnan muni á næstunni ráðast af samspili minni spennu í þjóðarbúskapnum, launaákvarðana og þróunar verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Kynningarfundurinn vegna yfirlýsingar peningastefnunefndar hefst nú klukkan 10:00






Fleiri fréttir

Sjá meira


×