Enski boltinn

Íslensk miðja í liði vikunnar hjá Alan Shearer

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Íslensku landsliðsmennirnir voru báðir í stuði.
Íslensku landsliðsmennirnir voru báðir í stuði. vísir/getty
Íslensku landsliðsmennirnir Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson eru báðir í liði vikunnar í ensku úrvalsdeildinni að mati Alan Shearer, markahæsta leikmanns deildarinnar frá upphafi.

Shearer er aðalsérfræðingur Match of the Day á BBC um ensku úrvalsdeildina en hann velur liðið fyrir opinberan Twitter-aðgang deildarinnar.

Hann stillir upp í kerfið 4-3-3 með Gylfa Þór og Jóhann Berg á miðjunni ásamt West Ham-manninum Felipe Anderson sem var öflugur í sigri á móti Manchester united.

Gylfi og Jóhann eru þeir einu úr sínum liðum sem komast í lið vikunnar en Chelsea á tvo leikmenn og önnur lið aðeins einn.

Gylfi skoraði tvö mörk og brenndi af vítaspyrnu í 3-0 sigri á nýliðum Fulham en Jóhann Berg skoraði og lagði upp í 2-1 sigri Burnley á móti Cardiff í síðustu umferð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×