Enski boltinn

Barkley og Jadon Sancho í enska landsliðshópnum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ross Barkley er í enska landsliðshópnum
Ross Barkley er í enska landsliðshópnum Vísir/Getty
Þrír nýliðar eru í enska landsliðshópnum sem mætir Króatíu og Spáni í Þjóðadeild UEFA. Ross Barkley snýr einnig aftur í enska hópinn.

Framherji Leicester James Maddison, miðjumaðurinn Mason Mount og Jadon Sancho leikmaður Borussia Dortmund eru nýliðar í enska hópnum.

Ross Barkley hefur ekki verið í enska landsliðinu síðan árið 2016 en hann fær náð fyrir augum Southgate.

Dele Alli og Jesse Lingard eru á meðal þeirra sem missa sæti sitt í hópnum, en báðir hafa þeir átt við meiðsli að undan förnu.

England spilar tvo leiki á útivelli í Þjóðadeildinni í komandi landsleikjahléi. Englendingar töpuðu fyrsta leiknum í keppninni fyrir Spánverjum á Wembley.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×