Erlent

Bein útsending: Hver hlýtur Friðarverðlaun Nóbels?

Atli Ísleifsson skrifar
Í ár bárust alls 329 tilnefningar, þar af eru 217 einstaklingar og 112 stofnanir.
Í ár bárust alls 329 tilnefningar, þar af eru 217 einstaklingar og 112 stofnanir. Vísir/Getty
Nóbelsnefnd norska Stórþingsins mun tilkynna innan skamms hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels. Fréttamannafundurinn fer fram í Osló og verður í beinni útsendingu.

Fundurinn hefst klukkan 9 og hægt er að fylgjast með útsendingunni hér að neðan.

Í ár bárust alls 329 tilnefningar, þar af eru 217 einstaklingar og 112 stofnanir. Upplýsingar um tilnefningarnar mega ekki líta dagsins ljós fyrr en 50 árum eftir að verðlaunin eru veitt.

Norska nefndin samanstendur af fimm einstaklingum sem tilnefndir eru af norska þinginu.

Norska nóbelsnefndin afhenti á síðasta ári Friðarverðlaunin til Aþjóðlegs átaks um útrýmingu kjarnavopna (e. International campaign to abolish nuclear weapons – ICAN). Samtökin hlutu verðlaunin fyrir að vekja athygli á þeim skelfilegu afleiðingum sem hverskyns notkun á kjarnavopnum hefur á mannkynið og fyrir að leggja grunn að því að ná á alþjóðlegri samþykkt um bann slíkra vopna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×