Sigurganga Arsenal heldur áfram

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Aubameyang átti frábæra innkomu inn af bekknum í dag
Aubameyang átti frábæra innkomu inn af bekknum í dag vísir/getty
Sigurganga Arsenal heldur áfram eftir sigur á Fulham í Lundúnarslag í ensku úrvalsdeildinni í dag.



Arsenal var sterkari aðilinn í leiknum og komust þeir yfir er Alexandre Lacazette skoraði á 29. mínútu leiksins.



Andre Schurrle jafnaði hins vegar fyrir Fulham á lokamínútum fyrri hálfleiks og stóðu leikar jafnir er flautað var til hálfleiks.



Arsenal byrjaði af krafti í síðari hálfleik og komust aftur yfir á 49. mínútu. Aftur var Lacazette á feðrinni með annað mark sitt.



Markahrókurinn Pierre-Emerick Aubameyang byrjaði á bekknum hjá Arsenal vegna veikinda hjá honum í vikunni. Hann átti hins vegar eftir að láta til sín taka eftir að hann kom inn á.



Hann lagði upp mark á annan varamann, Aaron Ramsey en Ramsey var nýkominn inn á völlinn þegar hann lagði hann snyrtilega með hælnum í stöngina og inn eftir laglegt samspil Arsenalmanna.



Aubameyang var svo sjálfur á skotskónum á 79. mínútu og skoraði hann fjórða mark Arsenal. Þá lék hann á varnarmann Fulham og lagði hann í snyrtilega í netið.



Gabonmaðurinn skoraði svo sitt annað mark í uppbótartíma. Hann fékk frábæra sendingu inn fyrir vörn Fulham frá Ramsey og kláraði vel í vinstra hornið. Öruggur 1-5 sigur Arsenal staðreynd.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira