Innlent

Hin meinta drátthaga langatöng bláu handarinnar skilur ekki lætin

Jakob Bjarnar skrifar
Meðal þeirra sem vanda Helga Sig ekki kveðjurnar eru Helga Vala, Ingibjörg Sólrún og Ragnhildur Sverrisdóttir.
Meðal þeirra sem vanda Helga Sig ekki kveðjurnar eru Helga Vala, Ingibjörg Sólrún og Ragnhildur Sverrisdóttir.
Helgi Sigurðsson, skopmyndateiknari Morgunblaðsins, er umdeildur listamaður og í dag tókst honum enn og aftur að ganga fram af fólki. „Ömurð!“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi forsætisráðherra þjóðarinnar, um mynd dagsins.

Í Mogga dagsins getur að líta teikningu af Margréti Kristínu Blöndal alías tónlistarkonunni Möggu Stínu sem áður gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Risaeðlunni. Magga Stína er nýlega tekin við formennsku í Leigjendasamtökunum, eins og Vísir hefur fjallað um. Á myndinni segir, „risaeðla“ og nýr formaður „leiðindasamtakanna“ leigumarkaðinn fíaskó og það verði að poppa þetta eitthvað upp.

Lágkúra á sterum

Vísir ræddi við Helga nú í morgun og hann sagðist ekki mjög spenntur fyrir því að tjá sig um myndir sínar í fjölmiðlum, hann vildi síður troða sinni persónu inn í þær. Erfitt að komast hjá því en Helgi Sig. segist ekki hafa neina þörf fyrir það að verja skopteikningar sínar, fólk verði bara að lesa það í þær sem vill og það megi hafa sínar skoðanir á því.





Já, fólk má hafa sínar skoðanir á myndum Helga og ekki stendur á þeim Á Facebook-vegg Ragnhildar Sverrisdóttur, aðstoðarkonu Björgólfs Thors athafnamanns og fyrrverandi blaðamanns á Mogganum, er téð teikning til umræðu. Og þar eru Helga ekki vandaðar kveðjurnar og er fólk á einu máli: Um sé að ræða lágkúru á sterum.

Teiknandi fingur bláu handarinnar

Ingibjörg Sólrún kallar þetta einfaldlega „ömurð“, Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir að þetta sé „vandræðaleg lágkúra“ og Ragnhildur sjálf leitast við að segja deili á teiknaranum: „Þetta er hinn teiknandi fingur bláu handarinnar, skilst mér.“

Vísir spurði Helga, sem nú hefur teiknað í Moggann í átta ár, hreint út hvort hann sé hin drátthaga langatöng bláu handarinnar, en svo hefur harðkjarni Sjálfstæðisflokksins verið nefndur? Helgi vill ekki meina að svo sé. Hann fái engar skipanir um umfjöllunarefni og efnistök. Hann teikni bara sínar myndir og skili þeim inn.

Ingibjörg Sólrún þarf ekki að hafa mörg orð um það hvað henni finnst: Ömurð. Víst er að Helgi verður seint látinn gjalda þess af hálfu Davíðs að gera henni gramt í geði.Fréttablaðið/anton brink
„Kannski eðlilegt að fólk haldi að svo sé, þetta er jú í Morgunblaðinu, en ég bara teikna. Dreg mínar ályktanir af því sem ég les og sé og bý til mynd af því. Það eru engar ordrur frá ritstjóra um hvað ég má segja og hvað ekki. Fólk getur í eyðurnar. Ég er ekki með neinar fastmótaðar pólitískar skoðanir. Er ekki í neinum flokki heldur kem bara að þessu sem teiknari.“

Helgi Sig. og Davíð á sömu blaðsíðunni

En, nú er óneitanlega mikill samhljómur milli mynda þinna og svo Staksteina- og leiðaraskrifa blaðsins? Það er samhljómur milli þín og Davíðs Oddssonar ritstjóra blaðsins?

„Það getur vel verið en það er ekki af því að ég hafi fengið skipanir eða einhverjar línur frá þeim, einhver tilviljun sem ræður því að við erum að skoða sömu viðburðina í fjölmiðlum. Ég les það sem Davíð skrifar í sínum leiðurum en ég er ekki að taka það upp eða reyna að verja hans stöðu. Ég er bara tjá mínar skoðanir. Maður verður fyrir áhrifum héðan og þaðan. Já, mér finnst Davíð skemmtilegur.“

En, ertu grjótharður hægrisinni?

Margir vilja greina nokkurn samhljóm í skopteikningum Helga Sig. og pistlaskrifum Davíðs Oddssonar. Helgi segir það alls ekki svo að hann fái ordrur frá Davíð um umfjöllunarefni.Fréttablaðið/Anton
„Ég veit það ekki. Ég er nú bara gamall hippi í mér. En, mér líst ekkert á þetta marxistatal og þessa stefnu sem margir vilja taka. Ég vil bara hafa gamla góða Ísland, ekki að einhverjir Evrópusambands-Sovíet-embættismenn séu að segja okkur fyrir verkum. Að því leyti er ég íhaldssamur,“ segir Helgi. En, hann vonar að það geri sig ekki gamaldags. Og Helgi lýsir því jafnframt að honum þyki lítið til þess koma þegar fólk vilji setja sig á háan siðferðilega stall og tali niður til fólks.

Það má alveg gera grín að Möggu Stínu

Helgi Sig. á erfitt með að skilja hvers vegna mynd dagsins fer svona þversum í margan manninn. Hann segist vera að gera góðlátlegt grín að Möggu Stínu, sem honum sé vel við og lýsir því að hann heyri alltaf „leiðindasamtökin“ þegar verið er að tala um „leigjendasamtökin“.

Magga Stína er nú orðin formaður Leigjendasamtakanna og hún var skotspónn Helga Sig. í dag.Alda Lóa
„Þau eru eitthvað að reyna að poppa upp stemmninguna þar og í verkalýðssamtökunum. Endar örugglega með því að samkvæmið springur upp í eina allsherjar popporgíu. Það er erfitt að horfa í gegnum þennan front sem Magga Stína hefur, skemmtikrafturinn og meðlimur í Risaeðlunni og svo ætlar hún sér að koma inn af þunga og dauðans alvöru inn í þessa umræðu. En, hún stóð sig vel í Silfrinu, hvar hún gerði grein fyrir máli sínu. Hún finnur þessa háu leigu á sínu skinni, en það má alveg gera grín að henni.“

Fólk haft samband nötrandi af bræði

Eins og áður sagði er Helgi Sig. umdeildur teiknari. Og fjölmörg dæmi eru um að teikningar hans hafi valdið hneykslan. Þannig fjallaði Andri Ólafsson um eina slíka í þættinum Ísland í dag þann 15. september 2015 og ræddi þá við Helga.

Í dag furðar Helgi sig á því hvernig fólk leyfði sér að túlka myndina og þá þar með dæma um innræti sitt. Hann segir að þá hafi fólk beinlínis verið nötrandi af bræði og í sig hringdi meðal annars maður sem sagðist ætla að vinna að því markvisst að hann fengi aldrei verkefni. Aldrei.

Myndin af flóttaskipinu var hugsuð sem samúðarmynd

„Ég skil ekki þessa reiði vegna teikningarinnar. Sjálfur var ég grátandi yfir sjónvarpinu vegna fréttanna. Síðasta sem ég myndi gera væri að hæðast að drukknandi fólki í Miðjarðarhafinu,“ segir Helgi.

Fjarstæðukennt. Ég er gamall hippi, stunda jóga og er grænmetisæta. Ég þekki allt þetta 101 lið.

„Og síðan á ég að vera undir ægivaldi bláu handarinnar af því að ég teikna í Morgunblaðið; þá og þar með eigi mér að finnast allt í lagi að gera grín að fólki sem er að drukkna?! Þarna var ég að fjalla um þann hóp sem er svo bláeygur að telja að Eygló Harðardóttir þá ráðherra gæti stoppað Soros, héðan frá Íslandi, í að kaupa einhverja gúmmíbáta sem notaðir voru í helfarartúrisma flóttamanna. Þetta var samúðarmynd af minni hálfu.

Helgi Sig. telur sig ekki njóta sannmælis sem teiknara meðan aðrir misgóðir, að hans mati, eru hafnir til skýjanna.
En, beindi sjónum að Samfylkingarliði Evrópu. Maður er rasisti ef maður vogar sér að spyrja hvort vert sé að galopna landamærin og taka þar með áhættuna á að rústa samfélaginu,“ segir Helgi. Og telur sjálfur ávinning af slíkri stefnu véfengjanlegan.

Nýtur ekki sannmælis meðan aðrir eru hafnir til skýjanna

Vitaskuld hafa hinar hörðu viðtökur við myndunum ekki farið fram hjá teiknaranum, þó hann reyni að láta sem ekkert sé. Helgi segir illt hvernig flokkadrættir geri afstöðu fólks eindregna og ósanngjarna. Hann veltir fyrir sér þeirri stöðu að vera kallaður skósveinn Davíðs og njóti ekki sannmælis meðan allt sem aðrir teiknarar er lofað í hástert.

„Maður er strípaður af öllu. Allt tekið. Ég teiknaði eitt sinn mynd af Ólafi Ragnari Grímssyni, það var verið að hífa upp af honum styttu. Og þá fékk ég það yfir mig að ég væri lélegur teiknari, meira að segja þótti leturgerðin léleg. Allt tekið, maður er strípaður af öllum mannkostum og hæfileikum,“ segir Helgi og reynir að greina stöðuna.

„Ég fæ yfir mig rotþró samfélagsmiðlanna og heilaga reiði fólks sem hefur lent í hruninu. Eins og ég beri ábyrgð á því af því að ég er að teikna í Morgunblaðið. Þetta lýsir því hvernig samfélagið getur flippað út á samfélagsmiðlum. Fólk fer á flug. ég er kannski svona ónæmur á þetta, harðbrjósta en mér finnst þetta bara vera góðlátlegt grín. En, þetta eru trúarbrögð ef ekki má segja neitt um leigjendasamtökin? Ég skil ekki alveg.“

Helgi Sig. segir að Bjarni sé líka manneskja, og furðar sig á því að fólki þyki voðalega fínt að teikna hann upp í einhverri nábrók.Fréttablaðið/Ernir
Helgi bendir á að meðan þessu fari fram séu aðrir teiknarar, sem hann telur kannski ekkert sérstaka, hafnir til skýjanna. Algerlega yfir gagnrýni hafnir. Þykir frábærir. En, það sé vegna þess að þeir eru í rétta liðinu. Sjálfur njóti hann aldrei sannmælis fyrir teiknihæfileika sína.

Hræsni í afstöðu

Þó Helgi leggi málið upp þannig að fólk geti lesið í teikningarnar dregur hann ekki dul á að hann er að tjá tiltekna afstöðu í myndum sínum. Lýsa tiltekinni afstöðu. Og hann furðar sig á máli sem nú er til umfjöllunar, Þrándi Þórarinssyni listmálara hefur verið meinað að sýna málverkið „Nábrókar-Bjarna“ á sýningu sinni sem opnuð verður í Hannesarholti um helgina. En, afstaða Helga er ekkert endilega sú að þar sé verið að beita grimmu valdi ritskoðunar. Hann greinir í það minnsta hræsni í afstöðu fólks.

„Það varð allt vitlaust þegar ég teiknaði ritstjóra Stundarinnar í mannætupotti. Þó er mannætupotturinn einhver helsta klisjan í skopmyndum. Þetta þótti ógeðslegt en ritstjóri Stundarinnar hefur atvinnu að því að gagnrýna Bjarna Benediktsson. Og nú verður allt vitlaust vegna þess að einhver teiknar hann í nábrók og fær ekki að sýna það. Það þykir voðalega fínt. En, Bjarni Benediktsson er líka manneskja og það er ekki hægt að strípa fólk af allri mennsku þó það sé í pólitík,“ segir hinn umdeildi skopmyndateiknari, Helgi Sig.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×