Enski boltinn

Rooney: Jose er auðvelt skotmark

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Wayne Rooney spilaði undir stjórn Mourinho síðasta tímabil sitt hjá United
Wayne Rooney spilaði undir stjórn Mourinho síðasta tímabil sitt hjá United vísir/getty
Wayne Rooney segir Jose Mourinho vera auðvelt skotmark en leikmennirnir þurfi að stíga upp og spila betur.

Rooney er markahæsti leikmaður í sögu Manchester United. Hann yfirgaf félagið sumarið 2017 og gekk til liðs við uppeldisfélagið Everton en spilar nú í bandarísku MLS deildinni.

Hann segir leikmennina bera alveg jafn mikla ábyrgð og Mourinho á slæmu gengi félagsins.

„Ég veit að Jose fær mikla gagnrýni, en eins og ég sagði fyrir nokkrum vikum þá verða leikmennirnir að stíga upp,“ sagði Rooney.

„Stjórinn getur ekki gert allt, þetta snýst að lokum um að leikmennirnir framkvæmi það sem af þeim er ætlast inni á vellinum og geri það vel og sem lið.“

„Gengið er blanda af öllu, en Jose er auðvelt skotmark,“ sagði Wayne Rooney.

Eftir endurkomusigur gegn Newcastle á laugardaginn er United í áttunda sæti eftir átta umferðir með 13 stig, sjö stigum á eftir toppliðunum þremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×