Enski boltinn

Sarri hefur ekki áhyggjur af meiðslum Pedro

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Pedro fór meiddur af velli í kvöld
Pedro fór meiddur af velli í kvöld vísir/getty
Maurizio Sarri hefur ekki áhyggjur af því að meiðsli Pedro séu alvarleg. Spánverjinn fór af velli með axlarmeiðsli í leik Chelsea og PAOK í Evrópudeild UEFA í dag.

Pedro fór meiddur af velli í lok uppbótartímans eftir samstuð við markmann PAOK, Alexandros Paschalakis.

Sarri sagði á blaðamannafundinn eftir leikinn, sem Chelsea vann 0-1, að hann hefði ekki miklar áhyggjur af meiðslum Sarri.

„Ég veit ekki nákvæmlega hver staðan er. Ég talaði við hann í nokkrar sekúndur og held þetta séu ekki alvarleg meiðisli,“ sagði Sarri.

Pedro hefur byrjað mjög vel í ensku úrvalsdeildinni, er kominn með þrjú mörk í fimm leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×