Borgarstjóri Feneyja vill sekta ferðamenn sem sitja aðgerðalausir á götunni Atli Ísleifsson skrifar 20. september 2018 23:30 Rúmlega 20 milljónir ferðamanna heimsækja feneyjar á hverju ári. Vísir/Getty
Luigi Brugnaro, borgarstjóri Feneyja á Ítalíu, segist vilja herða reglur til að draga úr straumi ferðamanna til borgarinnar enn frekar. Brugnaro hefur lagt til að lögreglu verði heimilt að sekta fólk sem sitji aðgerðalaust á götum, gangstéttum eða torgum um milli fimmtíu og fimm hundruð evrur. Í frétt Guardian segir að borgarstjórn í Feneyjum muni greiða atkvæði um tillöguna í október. Þá íhugi borgarstjórinn ennfremur að bannað verði að spila tónlist í öllum þeim bátum sem sé siglt um síki borgarinnar. Um 60 þúsund ferðamenn koma til Feneyja á degi hverjum eða rúmlega tuttugu milljónir á ársgrundvelli. Alls búa um 50 þúsund manns í gamla borgarhluta Feneyja, svo ferðamenn eru þar ætíð í meirihluta. Borgarbúar hafa lengi kvartað vegna hins mikla fjölda ferðamanna. Borgaryfirvöld hafa þegar gripið til ýmissa bragða til að draga úr áhuga ferðamanna að sækja borgina heim. Þannig er nú þegar óheimilt að borða á götum úti, að setjast á Markúsartorginu, gefa dúfunum og ganga um ber að ofan. Þá verða þeir sektaðir sem synda í síkjum borgarinnar.
Mest lesið Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Fleiri fréttir Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Sjá meira