Sport

Tvær bestu glímukonur landsins mætast í ofurglímu

Inga Birna á síðasta Bolamóti.
Inga Birna á síðasta Bolamóti. Snorri Björns.
Tvær bestu glímukonur landsins mætast í sannkallaðri ofurglímu á Bolamótinu 2 í kvöld. Á Bolamótinu verða 10 ofurglímur á dagskrá þar sem búið er að raða saman skemmtilegum viðureignum.

Þrír erlendir glímumenn koma sérstaklega hingað til lands til að keppa á mótinu en í aðalglímu kvöldsins mætast svartbeltingarnir Halldór Logi Valsson og Ben Dyson. Á síðasta Bolamóti í febrúar kom UFC-bardagamaðurinn Tom Breese hingað til lands þar sem hann tapaði fyrir Sighvati Helgasyni í aðalglímu kvöldsins.

Keppt er í uppgjafarglímu og eru svo kallaðar EBI reglur í gildi. Engin stig eru í boði og er því einungis hægt að sigra með uppgjafartaki. Ef tíminn klárast hefst bráðabani þar sem keppendur skiptast á að byrja með uppgjafartak á meðan hinn reynir að sleppa úr stöðunni. Það er því alltaf einhver sigurvegari og engin jafntefli.

Í einni af aðalglímum kvöldsins mætast þær Inga Birna Ársælsdóttir úr Mjölni og Ólöf Embla Kristinsdóttir úr VBC. Þær tvær eru bestu glímukonur landsins og hafa nokkrum sinnum keppt gegn hvor annarri en aldrei undir þessum reglum. Báðum hefur tekist að sigra hvor aðra í gegnum tíðina en í kvöld þurfa þær að klára glímuna með uppgjafartaki enda engin stig í boði. Nánar má fræðast um stelpurnar hér.

Uppselt er á viðburðinn en glímurnar verða sýndar í beinni útsendingu á Youtube-síðu Mjölnis.


Tengdar fréttir

Sighvatur pakkaði enska UFC-kappanum saman

Um nýliðna helgi fór fram uppgjafarmót í glímu í húsakynnum Mjölnis í Öskjuhlíð. Mótið heppnaðist vel en í aðalbaradaganum var mættur UFC kappi frá Englandi til þess að glíma við Sighvat Magnús Helgason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×