Erlent

Enn ein skotárásin í Kaupmannahöfn

Atli Ísleifsson skrifar
Árásin tengist átökum glæpagengja.
Árásin tengist átökum glæpagengja. Vísir/Getty
Þrír særðust í skotárás í miðborg Kaupmannahöfn í kvöld. Lögreglu barst tilkynning um skothríð skömmu eftir klukkan 21 að staðartíma, eða 19 að íslenskum tíma, í borgarhlutanum Nørrebro. Fjölmennt lið lögreglu var sent á vettvang.

Danska ríkisútvarpið  greinir frá því að þrír sjúkrabílar hafi verið á vettvangi, en ekki er vitað um ástand hinna særðu.

Lögregla hefur staðfest að árásin, sem var við Meinungsgade, tengist átökum glæpagengja í borginni.

Þetta er áttunda skotárásin í dönsku höfuðborginni síðustu sjö dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×