Fótbolti

Rúnar haldið hreinu í þremur af fyrstu sex leikjunum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rúnar baðar út höndum í leiknum í dag.
Rúnar baðar út höndum í leiknum í dag. vísir/getty
Rúnar Alex Rúnarsson er búinn að halda hreinu í þremur af fyrstu sex leikjunum sínum í frönsku úrvalsdeildnni.

Rúnar og félagar gerðu markalaust jafntefli við Stade Reims á útivelli í dag en Rúnar hefur fengið á sig sex mörk í fyrstu sex leikjunum.

Dijon er í sjötta sæti deildarinnar með tíu stig. Þetta var fyrsta jafntefli liðsins á tímabilinu en Dijon hafði unnið þrjá og tapað tveimur leikjum fyrir leikinn í kvöld.

Stade Reims er í tíunda sæti deildarinnar með tveimur stigum minna en Rúnar Alex og félagar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×