Fótbolti

Stórsigur hjá Söru og félögum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Wolfsburg.
Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Wolfsburg. Vísir/Getty
Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur í þýska meistaraliðinu Wolfsburg fara vel af stað í nýju tímabili í Bundesligunni. Þær unnu stórsigur í dag.

Ewa Pajor skoraði þrennu í síðari hálfleik í fimm marka sigri Wolfsburg á Essen. Pernille Harder og Nilla Fischer skoruðu hin mörkin fyrir Wolfsburg en öll komu þau í síðari hálfleik.

Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk spilaði allan leikinn á miðjunni fyrir Wolfsburg.

Wolfsburg er með fullt hús eftir tvo leiki en er þó ekki á toppi deildarinnar því Bayern Munich er búið að vinna enn stærri sigra og er með þrettán mörk í plús eftir leikina tvo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×