Handbolti

Arnór Þór markahæstur í sigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Arnór er að byrja feikilega vel í úrvalsdeildinni
Arnór er að byrja feikilega vel í úrvalsdeildinni mynd/dhb
Arnór Þór Gunnarsson hélt áfram að raða inn mörkunum fyrir Bergischer í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag. Bergischer vann eins marks útisigur á Stuttgart.

Arnór Þór hefur byrjað mótið virkilega vel með Bergischer, sem er nýliði í deildinni þetta tímabilið. Hann var markahæsti maður vallarins í dag með sex mörk úr átta skotum.

Gestirnir í Bergischer byrjuðu betur og voru 16-18 yfir í hálfleik. Þeir komust í fjögurra marka forystu en misstu hana niður og var leikurinn mjög spennandi í lokin. Bergischer náði þó að fagna sigrinum, lokatölur urðu 30-31.

Nýliðarnir eru með átta stig eftir fyrstu sex leikina og eru eins og er í fimmta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×