Enski boltinn

Pogba: Á heimavelli verðum við að sækja meira

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Pogba vill sjá meiri sóknarbolta
Pogba vill sjá meiri sóknarbolta Vísir/Getty
Paul Pogba kallar eftir því að liðsfélagar sínir í Manchester United sæki meira þegar liðið spilar á heimavelli sínum, Old Trafford.



United gerði 1-1 jafntefli gegn nýliðum Wolves á heimavelli en það var Fred sem skoraði mark United.



United hafa unnið síðustu þrjá útileiki sína, gegn Burnley, Watford og Young Boys en hafa ekki verið eins öflugir á heimavelli. Þar töpuðu þeir meðal annars gegn Tottenham, 3-0.



„Þegar við erum á heimavelli, ættum við að sækja, sækja og sækja. Þetta er Old Trafford,“ sagði Pogba eftir jafnteflið.



„Við erum á heimavelli og við ættum að spila mun betur gegn Wolves. Við erum hér til þess að sækja. Ég held að lið eru hrædd þegar þau sjá Manchester United sækja og sækja. Það voru okkar mistök.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×