Erlent

Klofningur innan borgaralegu blokkarinnar í Svíþjóð

Atli Ísleifsson skrifar
Ebba Busch Thor, leiðtogi Kristilegra demókrata, Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterna, Jan Björklund, leiðtogi Frjálslyndra, og Annie Lööf, leiðtogi Miðflokksins.
Ebba Busch Thor, leiðtogi Kristilegra demókrata, Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterna, Jan Björklund, leiðtogi Frjálslyndra, og Annie Lööf, leiðtogi Miðflokksins. Vísir/Getty
Skiptar skoðanir eru nú meðal leiðtoga flokka innan bandalags borgaralegu flokkanna í Svíþjóð um hvernig skuli leitast við að mynda nýja ríkisstjórn í landinu.

Meirihluti sænska þingsins samþykkti í morgun vantraust á Stefan Löfven forsætisráðherra. Ríkisstjórn hans mun þó starfa áfram sem starfsstjórn þar til ný stjórn hefur verið mynduð.

Vill leita stuðnings Jafnaðarmanna

Jan Björklund, leiðtogi Frjálslyndra, segist ekki vilja mynda nýja stjórn án einhvers konar stuðnings Jafnaðarmannaflokksins, leiðtogi hvers er Löfven, forsætisráðherrann fráfarandi.

Ebba Busch Thor, leiðtogi Kristilegra demókrata, segist hins vegar vilja mynda hægristjórn, jafnvel þó það þýði að leita stuðnings Svíþjóðardemókrata. „Okkar afstaða er að Alliansen [bandalag borgaralegu flokkanna] eigi að mynda ríkisstjórn ef það er stuðningur á þingi,“ segir Busch Thor.

Kristilegir demókratar og Frjálslyndir mynda ásamt Moderaterna og Miðflokknum bandalag borgaralegu flokkanna.

Stefan Löfven, fráfarandi forsætisráðherra Svíþjóðar.Vísir/Getty
Erfið staða

Löfven segist ekki hafa áhuga á að styðja við stjórn borgaralegu flokkanna, og bendir á að hann leiði stærstu blokkina á þingi og eigi að fá að leitast við að mynda nýja stjórn. Skipti Löfven ekki um skoðun eru borgaralegu flokkarnir mjög ósammála um hvernig skuli fram haldið.

„Engin blokkanna er með nægilega mikinn suðning svo að við verðum að vinna saman þvert á blokkir. Takist ekki að mynda nýja stjórn þarf að boða til nýrra kosninga í landinu,“ segir Björklund. „Að mynda ríkisstjórn og þurfa svo að segja af sér mánuði síðar þegar maður tapar atkvæðagreiðslu um fjárlög í þinginu, er mjög slæm kænska.“

Annie Lööf, leiðtogi Miðflokksins, deilir skoðun Björklund. Hún segist ekki ætla sér að vera háð Svíþjóðardemókrötum.

Útilokuðu Svíþjóðardemókrata

Busch Thor segist helst vilja starfa með Jafnaðarmönnum en ef Löfven útilokar að verja hægristjórn vantrausti þá segist hún vilja leita annarra leiða, jafnvel þó það þýði að stjórnin sé háð stuðningi frá Svíþjóðardemókrötum.

Fyrir kosningar útilokuðu allir flokkarnir að starfa með Svíþjóðardemókrötum við myndun stjórnar, en flokkurinn rekur harða stefnu í innflytjendamálum.

Rauðgrænu flokkarnir eru með 144 þingmenn, bandalag borgaralegu flokkanna 143 og Svíþjóðardemókratar 62.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×