Innlent

Allt að tíu manns vísað frá gistiskýlinu við Lindargötu

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Vísa hefur þurft allt að tíu einstaklingum frá gistiskýlinu við Lindargötu undanfarna daga vegna plássleysis. Aðsóknin eykst þegar líða tekur á veturinn og forstöðumaður gistiskýlisins segir til mikils að vinna sé málaflokknum vel sinnt. Aðsóknin í gistiskýlið fer vaxandi með kólnandi veðri en þar er pláss fyrir 25 manns í senn og er fólk yfirleitt komið í röð fyrir utan síðdegis í von um að komast að.

„Það hefur aukist undanfarnar vikur og því miður þá höfum við verið að vísa aðeins frá, fleirum núna en yfir sumarmánuðina. Þetta eru gjarnan kannski tveir þrír og það sem versta var upp í tíu sem við höfum þurft að vísa frá undanfarnar nætur,“ segir Þór Gíslason, forstöðumaður gistiskýlisins við Lindargötu.

Ungur maður sem fréttastofa ræddi við utan við gistiskýlið í dag kveðst hafa áhyggjur af vetrinum. Sjálfur hafi hann lent í því að komast ekki að og endaði á að sofa í tjaldi í Öskjuhlíð.

„Það að sinna hópnum vel, með margvíslegum úrræðum, það mun náttúrlega bæta lífsgæði þeirra. Þó að við björgum ekki öllum en þá verða lífsgæði þeirra betri. Það dregur úr heilsufarslegum vandamálum þeirra sem að hefur bein áhrif inn í heilbrigðiskerfið, það dregur úr vanda þeirra gagnvart lögreglunni og fangelsum og öðru slíku og ekki síður bara samfélagsins, það verður minna áreiti og árekstrar gagnvart hópnum. Þannig að það er allt til að vinna að sinna málaflokknum,“ segir Þór.

Til stendur að opna nýtt neyðarskýli á næstunni sem hugsað er fyrir þá sem eru í harðari fíkniefnaneyslu. „Þegar nýtt gistiskýli hefur verið opnað þá þurfum við bara að sjá hvernig þróunin verður hér, hversu mikið við getum dregið úr starfseminni hér akkúrat á þennan stað og breytt henni jafnvel í einhver önnur úrræði,“ segir Þór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×