Fótbolti

Arnór og félagar í undanúrslit norska bikarsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arnór handsalar samninginn.
Arnór handsalar samninginn. mynd/heimasíða lilleström
Arnór Smárason og félagar í Lilleström eru komnir í undanúrslit norska bikarsins eftir 2-0 sigur á C-deildarliðinu Bryne í átta liða úrslitunum.

Leikið var á heimavelli Lilleström í kvöld. Þéttur varnarmúr gestana frá Bryne hélt í fyrrri hálfleik og staðan var markalaus í hálfleik eða allt þangað til á 66. mínútu.

Þá kom Thomas Lehne Olsen heimamönnum í Lilleström yfir og einungis þremur mínútum síðar var það Íslandsvinurinn, Gary Martin, sem tvöfaldaði forystuna af vítapunktinum.

Arnór hefur farið frábærlega af stað frá því að hann gekk í raðir Lilleström en var hvíldur á bekknum í dag. Það kom ekki að sök og Lilleström komið áfram.

Það verða því þrjú Íslendingalið í undanúrslitum bikarsins því í gær tryggðu Rosenborg og Start sig í undanúrslit. Matthías Vilhjálmsson leikur með Rosenborg og Aron Sigurðarson með Start.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×