Formúla 1

Bottast á ráspól í Rússlandi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bottas og Hamilton hressir í dag.
Bottas og Hamilton hressir í dag. vísir/getty
Valtteri Bottas, Mercedes, verður á rásspól á morgun í rússneska kappakstrinum en hann hafði betur gegn liðsfélaga sínum, Lewis Hamilton.

Bottas var 0,145 sekúndum á undan heimsmeistaranum sem gerði sig sekan um mistök á tveimur hringjum er lítið var eftir.

Sebastian Vettel, sem berst um heimsmeistaratitilinn við Hamilton, byrjar þriðji á morgun en hann var 0,557 frá Bottas.

Flestir héldu að Hamilton yrði fremstur eftir að hann byrjaði æfingarnar mjög vel en gaf eftir og félagi hans, Bottas, tók rásspólinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×