Viðskipti innlent

Afar ólíklegt að bankarnir hafi aðkomu

Hörður Ægisson og Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Vonir WOW air standa til að skuldabréfaútboðið klárist á morgun, föstudag, og að félaginu takist þá að sækja sér nýtt fjármagn, sem verði jafnvel meira en sem nemur 5,5 milljörðum, til að treysta starfsemi sína.
Vonir WOW air standa til að skuldabréfaútboðið klárist á morgun, föstudag, og að félaginu takist þá að sækja sér nýtt fjármagn, sem verði jafnvel meira en sem nemur 5,5 milljörðum, til að treysta starfsemi sína. Vísir/Vilhelm
Afar ólíklegt er talið að stóru bankarnir þrír muni koma að fjármögnun WOW air, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, en forsvarmenn þess hafa meðal annars leitað liðsinnis bankanna til þess að tryggja að lágmarksstærð yfirstandandi skuldabréfaútboðs félagsins, jafnvirði um 5,5 milljarða króna, verði náð.

Stjórnendur og ráðgjafar WOW air vinna nú þess í stað hörðum höndum að því að fá erlenda fjárfesta til þess að taka þátt í útboði flugfélagsins. Á síðustu dögum hafa Fossar markaðir, sem hafa undanfarin ár verið leiðandi í að hafa milligöngu um kaup erlendra sjóða í skráðum hlutabréfum og skuldabréfum á Íslandi, komið í auknum mæli að þeirri vinnu, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Vonir WOW air standa til að skuldabréfaútboðið klárist á morgun, föstudag, og að félaginu takist þá að sækja sér nýtt fjármagn, sem verði jafnvel meira en sem nemur 5,5 milljörðum, til að treysta starfsemi sína.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 1,3 prósent í viðskiptum gærdagsins en viðmælendur Fréttablaðsins segja að hækkunina megi að hluta rekja til væntinga fjárfesta um að WOW air takist að ljúka útboðinu.

Flugfélagið skilaði inn ársreikningi vegna síðasta árs til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra í fyrradag en þess hefur verið beðið með þó nokkurri eftirvæntingu.

Olíukostnaður WOW air nam 122,3 milljónum dala, sem jafngildir 13,8 milljörðum króna, á síðasta ári og meira en tvöfaldaðist frá fyrra ári þegar hann var 60,8 milljónir dala, jafnvirði 6,9 milljarða króna. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi flugfélagsins.

Verð á flugeldsneyti hækkaði um 20 prósent á síðasta ári en hækkunin hefur verið enn meiri, yfir 30 prósent, það sem af er þessu ári. Olíukostnaðurinn nam ríflega 25 prósentum af tekjum WOW air í fyrra en hlutfallið var 19,8 prósent árið 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×