Þjóðverjar og Ítalir ná saman um móttöku flóttafólks Atli Ísleifsson skrifar 13. september 2018 10:44 Angela Merkel Þýskalandskanslari ræðir við innanríkisráðherrann og leiðtoga CSU, Horst Seehofer. Vísir/Getty
Stjórnvöld í Þýskalandi hafa náð samkomulagi við Ítalíustjórn um að flóttamenn sem hafi áður sótt um hæli á Ítalíu verði sendir aftur þangað. Frá þessu greinir þýski innanríkisráðherrann Horst Seehofer, en gert er ráð fyrir að ritað verði undir samkomulagið á næstu dögum. Þýska stjórnin náði samkomulagi við stjórnvöld í Grikklandi og Spáni í síðasta mánuði um að allir þeir flóttamenn sem komi til Þýskalands eftir að hafa áður sótt um hæli í Grikklandi eða Spáni verði sendir aftur til baka innan tveggja sólarhringa. Samkomulag Þýskalandsstjórnar við stjórnvöld í Miðjarðarhafsríkjunum er afleiðing málamiðlunar þeirra flokka sem saman mynduðu ríkisstjórn í Þýskalandi eftir kosningar, það er Kristilegra demókrata (CDU) og systurflokks hans í Bæjaralandi (CSU) og Jafnaðarmannaflokksins (SDP). CSU hafa barist fyrir að þýsk stjórnvöld herði stefnu sína í innflytjendamálum. Þýska stjórnin vonast til að mál allra hælisleitenda sem komi til Þýskalands og hafi áður sótt um hæli í öðru aðildarríki ESB, fái flýtimeðferð og verði sendir til baka innan tveggja sólarhringja. Þetta krefst þó tvíhliða samninga milli ríkjanna tveggja sem um ræðir í hverju tilviki.
Flóttamenn Þýskaland Mest lesið Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Sjá meira